EN

M11 arkitektar — arkitektúr og skipulag

Stofan

Hugrún Þorsteinsdóttir og Jón Grétar Magnússon

M11 er arkitektastofa í Reykjavík, stofnuð árið 2015 af Hugrúnu Þorsteinsdóttur arkitekt og Jóni Grétari Magnússyni byggingarfræðingi.

Við hönnum byggingar af ólíkum stærðum og gerðum – allt frá einbýlis- og frístundahúsum til fjölbýlishúsa og atvinnuhúsnæðis – og komum jafnframt að deiliskipulagi og þróun uppbyggingarverkefna. Stofan tekur að sér verkefni frá fyrstu hugmynd og greiningu á möguleikum lóðar, í gegnum hönnun og leyfisferli, til fullhannaðs mannvirkis.

Hugrún og Jón koma að verkefnum með ólíkan en samverkandi bakgrunn. Arkitektúr og rýmisleg nálgun annars vegar og þekking á byggingum, útfærslu og framkvæmd hins vegar hafa mótað vinnulag stofunnar. Við leggjum áherslu á að góð hugmynd haldi sér alla leið niður í smáatriðin og að hönnun og útfærsla myndi eina heild.

Við leitum að lausnum sem byggja á skýrum forsendum – staðnum, notkuninni, byggingaraðferðinni og þörfum þeirra sem þar eiga að búa eða starfa. Áherslan er á sterka heild, vandaðan arkitektúr og byggingar sem eldast vel.

Í dag starfa sex manns hjá M11 og verkefnin eru unnin í nánu samstarfi við verkkaupa, ráðgjafa og aðra sem koma að framkvæmdinni. Við viljum halda hönnunarferlinu persónulegu og beinu, óháð stærð verkefnis.

Starfsfólk

Hafa samband.

Segðu okkur frá þínu verkefni — við fylgjum því alla leið.

Hafa samband